Surprise
það nýjasta !

* Myndir Pakkh&uacut

30.09.2007 13:16:14 / surprise

Heima ...

Ég kíkti heim um helgina og er hér enn. Fer þó að líða að kveðjustund .. því miður.

Kom um níu leitið á föstudaginn eftir langa og óþægilega bílferð. Ég nefnilega .. snillingurinn sjálfur lenti inn á spítala kvöldið áður með gliðnaða rifbeinagrind og nokkrar flísar brotnar úr rifbeininu. Sérstaklega óþægilegt. En ég komst heim að lokum .. sem betur fer :)

Hitti sætustu stelpurnar um kvöldið .. fyrst á rúntinn með Brynju, Frikka, Lejlu og Karý en svo kíktum við Brynja og Frikki í partý til Ella þar sem ég hitti Annie mína sætustu! Fór reyndar snemma heim enda lítið gaman af því að vera edrú og slasaða manneskjan í partýinu ..

Í gær fór ég svo að versla með mömmu .. náði að finna mér alveg smá. Er allavega nokkrum tuskum ríkari og vekjaraklukku sem er kraftaverk! Akkurat það sem ég þurfti í litla kósý herbergið mitt .. svo kom Annie til mín og við keyptum helling af nammi og leigðum dvd .. lágum svo uppí sófa að horfa á dvd langt fram eftir kvöldi :D

Núna er ég bara að bíða eftir að Janus og Heimir verði tilbúnir til að leggja í hann .. hlakka smá til að koma aftur á Vatnið góða .. svona afþví ég náði ekki að kveðja stelpurnar því þær voru allar farnar þegar ég kom af spítalanum .. kem svo heim aftur eftir tvær vikur :) get ekki beeeðið! uppskeruhátíð meistaraflokks kvenna og karla .. það verður nett :D

En jæja ég ætla að kveðja í bili .. klára að pakka niður og svona :) fer svo vonandi að leggja í hann því við Sigurborg ætlum að elda tortillas í kvöld ef ég kem nógu snemma :D yayyyy.. enda þetta með mynd af mér og Annie .. við erum nú alveg ótrúlega myndarlegar ha?


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 14:39:20 / surprise

....

Já halló .. Þá læt ég loksins í mér heyra. Enda kominn tími til.

Nú er fjórða vikan af dvöl minni á Laugarvatni að ganga í garð og skilur eftir sig þrjár yndislegar og fáranlega skemmtilegar vikur. Busavikan var þó toppurinn jafnvel þótt það hafi verið farið hálf illa með okkur greyin. Endaði með Dauðagöngunni sem var upplifun og fínu balli um kvöldið. Á laugardeginum þá helgi fór ég svo með yndislegu Sigurborgu minni í sumarbústað þar sem gamlir ML-ingar voru ásamt fleirum .. það var gaman þrátt fyrir mikið minnisleysi það kvöldið.

Skólinn er eins og hann er .. sumir tímar skemmtilegri en aðrir. Fimmtudagarnir standa þó uppúr, því þá er alltaf eitthvað til að hlakka til. Rusty um kvöldið og ef ekki þá er helgin alltaf innan seilingar. Seinustu helgi fór ég í Hveragerði til æðislegu Guðrúnar minnar.. sem var best í heimi. Kíktum í eitthvað partý um kvöldið og hittum Malínu þar .. en það var því miður eitthvað hálf slappt þannig við fórum bara heim að horfa á litlu hafmeyjuna. Á laugardeginum var svo FSu ball sem var toppur helgarinnar. Ótrúlega gaman, margir ML-ingar og góð stemming. Náði að hitta Hilmar minn aðeins .. og með honum voru þeir Sindri og Helgi og ekki var nú leiðinlegt að hitta þá félaga.

Seinasta skólavika kom og leið .. vorum með lítið fyrstu bekkinga partý hér á vistinni á fimmtudaginn sem var gargandi snilld. Vorum orðin nokkuð hress á því þegar fólk fór að týnast út um allt. Einhverjir á lindina og aðrir í rusty og uppá jónas. Ég fór hinsvegar í eitthvað gufubað með Holgeri og Aroni .. haha það var fyndið en skemmtilegt. Og verður án efa endurtekið.

Þessi helgi var svo bara nokkuð góð .. rættist úr henni á endanum. Tók því bara rólega á föstudaginn .. ég og Gummi bara að meikaða í photo booth og svo horfa á Guffagrín með Örnu, Hálfdáni og kærustunni hans. Byrjuðum svo nokkur á vistarfylleríi í gær og enduðum í rusty. Það var hellað og geðveikt gaman.

Núna ligg ég bara uppí rúmi í yndislega herberginu okkar Guðrúnar og Malínar .. bíð eftir að þær ásamt Allý komi enda hálf einmannalegt hér ein í herberginu. Fara svo að týnast inn myndir og svona .. um leið og ég ákveð að vera dugleg. Get reyndar engu lofað um hvenær það gerist.. en við skulum bara bíða og sjá.

Annars sakna ég ykkar ótrúlega mikið snúllurnar mínar .. og get ekki beðið eftir að sjá ykkur í október :) það verður mega .. en ég bið bara að heilsa ölum :D yayyyy ..

Dagbjört :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 21:13:56 / surprise

... what?

jæja, þá loksins kemur eitt blogg hérna, veit nú ekki hversu vel það á eftir að heppnast en ég ætla samt að reyna.

skólinn byrjaður og ég er ekki alveg að meta þetta sko, sleppur samt. síðan vorum við í 3.flk í vestmanneyjum þarseinustu helgi, úrslitakeppnin og lentum í 2 sæti, til hamingju við.

(ekki lesa þetta f. neðan nema þér leiðist verulega mikið og þu hefur ekkert að gera..)

 en síðan leið bara skólavikan og ég skellti mér í bæinn á fimmtudagin og það má segja að sú ferð hafi verið nokkurnvegin perfect. - kom í bæinn þarna á fimmtudagskvöld og fór heim til ásu og við svona höfðum það kósý það kvöldið, og dagin eftir skelltum við okkur á kaffihús og eitthvað aðeins á laugarvegin, sem endaði þannig að ég fór í klippingu. .)  síðan um kvöldið var haldið í bíó og við vorum nu nokkur og það fóru flestir á einhverja mynd man ekki nafnið, en ég og Baddi fórum á Rush Hour3 og það má segja að hún hafi staðið fyrir sínu, síðan fórég aðeins með fólkinu niðrá grettisgötu og þaðan heim og horfa á video :*  þá var komið að laugardeignum og ég og Ása fórum í kringluna og enduðuum á kaffihúsi með Svönu, og Báru. fórum síðan eitthvað heim og ég gerði mig klára f. kvöldið og fór með kidda,ogga og atlah. niðrá grettisgötu í svakalegt innflutningsparty?, allavega skemmti mér ágætlega þar og fór síðan niðrí bæ með liðinu á Glaumbar?, en endaði síðan með Ásu, Alla, Báru, og fleiri hornfirðingum sem búa ekki hérna lengur, og það var Geð! svo kom Eydís ;*  á Sólon til okkar og við toppuðum kvöldið með jóafeldansinum ásamt fleirri dönsum. hélt síðan heim um hálf 7 með nettaðasta og svalasta taxabílstjóra sem ég hef nokkurntíman á ævinni séð. (einn sá glataðasti) allavega fór örugglega að sofa svona 8 eðae-ð. vaknaði síðan varla á sunnudagin, nema til að fara á skiptibókamarkað eða e-ð í smáralindinn og já, við vorum örugglega ógeðslegust þar. en svaf síðan bara til 9 um kvöldið skellti mer á KFC og síðan heim að sofa. og vaknaði ógeðslega snemma (kl.6:41) til að mæta í litla og ljóta flugvél sem var á leið tilhafnar, og síðan í skólann.  -> þakka þessu skemmtilega fólki fyrir helgina :)

en síðan  núna hefur vikan liðið frekar hægt, skólinn svona öm og við getum ekki lanað lengur á lesstofunni (N)  svo götin fara í það að læra ..   en þangað til næst! =)

 ..anna..

síðan legg ég til að Brynja og Darrt fari að koma með kannski svona eina færslu?

Enhvernig væri svo að koma með Comment :) ?


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 16:36:46 / surprise

Til Hamingju Með Afmælið Brynja ;*

 Í dag er mikill  gleðidagur !
en þann 17.ágúst 1992 s.s fyrir 15 árum fæddist undurfögur snót sem fékk síðan nafnið
Brynja Rut
en síðan hefur  hún síðan verið stór partur af lífi okkar beggja  <3 en hérna kemur smá afmælissöngur til hennar !;*

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hun Brynja 
Hún á afmæli i dag ;*

Hún er 15 ára í dag
Hún er 15 ára í dag
Hún er 15 ára ún Brynja
Hún er 15 ára í dag ;**


Þínar vinkonur Anna&Dagga;*

litla krílið í DiskóFíling..

 

En einmitt í Dag er hún Dagbjört okkar því miður að yfirgefa okkur ..
og er að flytjast á Laugarvatn!

Við munum Sakna Þín Ofur mikið ;* og hafðu það gott Slúbbí!

Sæta.. Við munum sakna þín!


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 18:52:53 / surprise

Ónefnd færsla



Blee,, ah langt síðan síðast

verslunarmannahelgin
kom & fór , frekar góð helgi fannst mér
ég allavega kvaddi helgina með 2 gullverðlaun & ein silfurverðlaun 
 ég varð unglingalandsmótsmeistari í tölti & fjórgangi með fínar einkunnir              
geri aðrir betur  ,,  & svo vorum við stelpur í 3.flokki í 2.sæti í fótboltanum ekki beint sáttar..

Vikan eftir helgina var svo bara vinna á Humarhöfninni && eitthvað með honum atla félaga & öhm ég bara man ekki meir ..
svo kom síðasta helgi & þá spiluðum við anna Fifa á föstudeginum & skemmtum okkur bara vel :) & svo á laugardeginum var vaknað & keyrt á húsavík í æðislegu rútunni okkar ,, reyndar sofið slatta við lejla reyndum nú að hafa þetta eins þægilegt & hægt var :)
svo var leikur klukkan 16:00 ,,

Völsungur - Sindri ! við mættum ákveðnar til leiks & staðan 1-1 í hálfleik
íískalt úti , grenjandi rigning & rok !
en við stilltum upp svona ;;


Lena
     Heba

SandraRán         Iðunn     Brynja  

                                                     Annalind
Sara     dagga      asta

Sigurborg

|GuðrúnFema|



Voðalítið gerðist í leiknum .. nema jú! Ég skallaði eitthverja gellu sem þurfti að fara útaf & vissi ekkert í sinn haus !! (A)
& Lena Fékk síðan Rauða Spjaldið eftir að hafa tæklað eitthverja ömsu sem sparkaði í hana til baka & lena ýtti smá í hana ! æj kann ekki að útskýra! hommadómari!


en eftir leikinn var skellt sér á HLÖÐUBALL sem var bara frekar gaman :)
frekar margir á balli & Raggi&co. bara mjög hressir & lagaval gott :)
Svo í lokin vil ég minna á meistaraflokksleik sem er á morgun klukkan 19:00
inná Mánavelli

Sindri - Fjarðarbyggð
MÆTIÐ !! MJÖG MIKILVÆGT :)


Brynja out :D



p.s -> TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ FRANS ;*
- surprise !!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 21:54:54 / surprise

Nýjar myndir ---> helgin 27-29 júlí

 

 Enjoy


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 18:45:14 / surprise

Net og Hversdagsleiki.

Er með Netið heima og það er alltaf til staðar, alltaf opið. Opið fyrir stanslausu flóði upplýsinga – og aldrei er fjara. Óháð himintunglunum. Flóð af Neti.
En þessi líka fíni sí-aðgangur að Netinu breytir því samt ekki að ég lendi alltaf á flæðiskeri. Flæki mig í Netinu og kemst ekkert áfram. Eða það sem réttara er: Veit ekkert hvert ég á að fara. Ég kveiki á, veit hreinlega ekki hvað ég á að skoða – og enda á því að skoða alltaf sömu örfáu síðurnar. Mbl, póstinn og örfáar bloggsíður vina.
Ég byrja sem sagt að brima um Netöldur, eins og vel tannaður Ástrali myndi brima þær söltu – en finn að lokum fáar. Fyrr en varir stend ég á brettinu mínu, á þurru landi og sekk varnarlaus í mjúkan sandinn. Eins og það hafi loks fjarað og ég stend eftir, strandaglópur. Svona info-strand.
Prófaði aftur í dag eins og alla aðra daga. Inter-hafið færði mér ekkert nýtt í dag. Stjörnurnar á himni höfðu líka séð þetta allt saman áður og sögðu mér opna bók í staðinn.
Sögðu mér að sí-lesa. Datt þá í hug að henda inn stuttri bloggfærslu á þessa gömlu góðu.
Mitt líf er rosalega einhæft þessa dagana. Skinney er að gera mig, rétt eins og alla aðra sem vinna þar brjálaða. Kjánalega leiðinleg tilfinning sem fylgir þessari vinnu. Ekki er ég ein af þeim sem geta hrósað uppsögn sinni þar, því ég hætti ekki fyrr en 18. ágúst. Hef verið dugleg við að skella mér í tanið og svo hitta stelpurnar eftir vinnu, nett sátt með það og það eru líka mikil framför .. ég er ekki sama letiblóðið lengur eins og í byrjun sumars ... nema þá kannski í fótboltanum. Stefni þó að því að bæta það talsvert núna eftir helgina.
Versló um helgina og ég ætla í sumarbústað með fjölskyldunni. Hefði alveg verið til í að eyða henni öðruvísi en það er líka ágætt að fara bara burt frá öllu og slappa aðeins af .. nýta tímann áður en ég fer á Laugarvatn. Ætla reyndar að reyna að draga frænda minn með mér á ball á Norðfirði á Laugardaginn. Ef ég næ því, þá efast ég ekki um að þar verði mikil skemmtun á ferð.
Ekki nema 17 dagar í skólann og ég get ekki beðið! Ég og Sigurborg orðnar nett spenntar fyrir þessum flutningum.. og eflaust ennþá spenntari fyrir busaballinu sem verður 25. ágúst. Held ég, Ætla held ég nokkrir Hornfirðingar að mæta .. þannig það verður geðveikt :)
en jæja ég er farin að borða .. út með sigurborgu, stelpur ef þið hafið áhuga á einhverju .. heyrið þá í mér sætu :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 13:36:09 / surprise

Nýjar myndir -> Akureyrarferð!!



Njótið

» 11 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 23:32:35 / surprise

...



& ég kann ekki að byrja blogg ! en allavega ,,
Voðalega lítið að gerast í mínu lífi núna!
Dagga kom heim í gær & við hittumst & spjölluðum , borðuðum ís & eitthvað!
voða gaman :) velkomin heim sæta ,*
en dagarnir hja mér eru nu svo voðalega rólegir & lengi að líða !! 
oftast bara hestbak & eitthvað svo fótboltaæfing er nú reyndar ögn smá meidd núna en það lagast ! leikur á laugardaginn :P && svo fer ég nu bara að sofa eða aftur á hestbak eftir æfingar eða eitthvað :/ :P  ,,
En akureyrar ferðin með mfl [samt aðallega Söru,Önnu&Eydisi ] var geðveik!! 
alveg þangað til það voru svona 10 min búnar af leiknum á sunnudeginum .. !
en tölum nu ekki meir um hann .. næsti mfl leikur er miðvikudaginn 25.. :) mætið ;*
En já! hætt þessu rugli búin að láta aðeins vita af mér .. ég er s.s á lífi & svo framvegis !
[koma svo bráðum myndir frá akureyri :D bíðið spennt ógó flottar myndir úr mývatns sundlauginni þarna heitu.. :)


 TinyPic image

- BrynjaRut

 








» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 12:38:46 / surprise

ótrúlega mikið komin heim ..

Þetta er flugstjórinn sem talar... þú ert alveg við það lenda og ert bara svona rétt aðeins ólent ennþá.

Þannig líður mér eiginlega. Kom heim frá París í nótt og er eiginlega ekki alveg búin að ná mér ennþá. Er með hálfgerða flugþreytu og flugveikin er ennþá að eltast við mig. Eitt flug eftir og þá ekki meira flug í bili .. flýg heim á Höfn kl fjögur í dag. Ég get ekki beðið enda Reykjavík ekkert sem ég nenni að eltast við núna. Það var líf og fjör á flugvellinum í Frakklandi í gær. Einhver bilun í innritunarkerfinu svo ég stóð í röð í tvo klukkutíma og svo fannst taska sem enginn kannaðist við að eiga svo það varð allt kreisý í kringum það ef þetta væri sprengja, ég var sem betur fer komin út í flugvél og var því ekki ein af þeim sem voru rekin út úr flugvélabyggingunni ef svo vildi til að í töskunni væri sprengja. Í staðin beið ég ásamt helling af óþolinmóðu og pirruðu fólki í þvílíkum hita inn í flugvél. Það lagaðist þó allt þegar við fórum í loftið og sáum öll ljósin sem lýstu upp borgina. Það var fallegt.

Bastilludagurinn var á laugardaginn og það var þvílíkt mikið um að vera í París. Brjáluð skrúðganga og svo risatónleikar um kvöldið. 600.000 manns á þeim og hellingur af tónlistarmönnum að spila, svo einhverjir séu nefndir .. td. Nelly Furtado og Tokio Hotel. Það var þó ekki það eina sem gerðist til að segja frá fór og skoðaði grafhýsin það var gaman, fór og skoðaði picasso safnið það var líka gaman. Skemmtilegast fannst mér þó að skoða Louvre.

Annars afrekaði ég alveg helling .. jú brennimerkti sjálfa mig með L-i á hægri ristina (Y) það tekst ekki hverjum sem er að stíga inn í sléttujárnið sitt. Sérstaklega þegar það er búið að vera kveikt á því í tvo tíma. Grillaði mig illilega í hitanum út í París .. en náði þó litlu tani :( Verslaði ágætlega mikið .. og svo gat maður auðvitað ekki farið í önnur lönd án þess að skoða skemmtanalíf þeirra ..

Get samt ekki neitað því að ég hlakka smá til að koma heim .. var að tala við Palla bróðir og hitinn hefur rokið upp í wien aftur eftir að ég kom með óveðrið með mér og á víst að vera 40 stiga hiti næstu 10 dagana. Pff .. ég er nú bara sátt með að vera komin heim í kuldann :D

Svo bara vinna, vinna, vinna .. en Skinney er svo skemmtilegt þannig það verður ekkert mál :) en já ég er farin að klæða mig og skreppa aðeins í kringluna (Y) bojjjj


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 16:02:42 / surprise

rugl bara

Hojjjj;*

Sit i tolvunum a hotelinu minu ad deeyyyyja ur hita! rumlega 30 stiga hiti uti sem er niiice! Buin ad gera alveg helling.. og tetta er buid ad vera gedveikt :)

I fyrradag for eg a frumsyningu nyju Harry Potter.. hun var mjog god (Y) for svo i gaer i messu i Notre Dame .. tad var geedveikt! kveikti a kerti fyrir ykkur stelpur :D svo buin ad skoda picasso safnid og grafhysi.. sem var sjukt :D er svo ad fara ad skoda louvre a eftir og fara i Eiffelturninn! oog a morgun aetla eg held eg i versailles og a sunnudaginn i astrikur og steinrikur gardinn :D og svo kem eg heeiiiiiim!

haha get ekki beint sagt ad eg hlakki til ad koma og vinna.. en tad er svosem agaett :) stutt i afmaelid mitt :D allir ad muna eftir tvi 27 juli ;* haha nenni ekki skrifa meir.. farin ad gera eitthvad med viti

Bojjj;D


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 14:15:11 / surprise

Afmælii ;*



Heyrðu hann ólafur okkar á afmæli í dag :)
& óskum við honum til hamingju með það & Bílprófið lika :)
Reynir svo að sleppa þvi að klessa oft á (virðist fylgja nafninu óli að klessa oft á ) :)



(Óli á góðum degi / kvöldi,,
sjáið kauða
sennilega ansi oft með eitt stykki svona í hönd
)



-
Eigðu góðan dag !! ;*

kveðja frá Surprise :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 07:43:49 / surprise

haha snillingur?

langaði að deila með ykkur að ég á þrjár brunablöðrur á fætinum mínum :D eftir að ég steig inn í sléttujárnið mitt með annan fótinn og svo ofan á það með hinum .. og það var heeiiiittttttt!! og smá vont líka :'(
hver vill vorkenna mér fyrir að vera mesti fáviti í öllum heiminum? :D
annars er ég að skemmta mér konunglega .. sá mörgæsir og allt í gær :D Belgía og París á morgun .. get ekki beðið!! btw. það er flippað veður hér.. er farin að versla ... og í sólbað í hallargarðinum :D yayyyy

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 10:06:28 / surprise

:)!

ALLIR AÐ SKOÐA BLOGGIÐ HENNAR BRYNJU F. NEÐAN AFMÆLISBLOGGIÐ :D:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 00:21:04 / surprise

Afmæææli ;* <3

Til Hamingju með 17 ára afmælið & Bílprófið elsku Atli okkar





- Surprise
 



& já síðan er að lifna við :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Setning ;*
Party like a Rockstar,
Fuck like a Pornstar!
 



Icon
lag;;

To Be With You - mr.Big

Hold on little girl
Show me what he

RSS tengill